28 jún. 2017

Í dag er komið að sænskum degi en við mætum öllum sænsku liðunum í dag. Í gær komu þrír sigrar í hús á norska deginum og í lokaleiknum rétt töpuðu strákarnir í U18 sínum leik.

 

Það er spennandi dagur framundan gegn sænsku liðunum sem eru ávallt með mjög sterk lið í öllum flokkum.

Þátttökuþjóðirnar á NM eru Danmörk, Eistland, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð.


Leikir dagsins: (ísl. tími):

10:45 U18 stúlkna

12:45 U16 drengja

17:15 U16 stúlkna

17:30 U18 drengja


Lifandi tölfræði:

Allir leikir mótsins verða í lifandi tölfræði á www.basket.fi.

 

Beinar netútsendingar:

Finnska sambandið sendir beint út frá öllum völlunum á YouTube-rás sinni: basketfinland.

https://www.youtube.com/user/basketfinland

 
#korfubolti