19 jún. 2017Í dag er komið að upphafi U20 vináttulandsleikjamóti karla sem fram fer í Laugardalshöllinni.

Leikskrá mótsins er að finna hérna: LEIKSKRÁ

Liðin sem koma til landsins eru U20 lið Finnlands, Svíþjóðar og Ísraels og verða leiknir tveir leikir á dag næstu þrjá daga. Leiknir verða tveir leikir á dag kl. 17 og kl. 20 og spilar Ísland alla dagana þrjá kl. 20:00.

Strákarnir okkkar eru að undirbúa sig fyrir lokamót EM hjá U20 en þetta er í fyrsta sinn sem við erum í A-deild í U20 karla og verður spennandi að sjá hvernig strákunum gengur, en þeir slógu í gegn í fyrra þegar þeir töpuðu úrslitaleiknum í framlengingu í B-deildinni. Nú eru þeir komnir í hóp 16 bestu liða U20 karla og munu spreyta sig á Krít þar sem FIBA heldur mótið í ár.

Miðasala á leikina í Höllinni verður á leikstað en miðaverð er 1.500 kr. fyrir hvern dag eða 3.000 kr. fyrir alla dagana og fer aðgöngueyrir upp í kostnað við mót sumarsins hjá strákunum.

KKÍ hvetur alla körfuboltaaðdáendur til að fjölmenna á leikina og styðja strákana í leikjunum framundan.

Leikdagur 1 í dag · U20 mót karla


19. júní · Mánudagur
17:00 - Leikur 1 · ISR-FIN

20:00 - Leikur 2 · SWE-ISL