19 jún. 2017

Ísland var undir allan leikinn eða alveg þangað til í blálokin er Kári Jónsson kom Íslandi yfir 59-58. Ísland kláraði svo leikinn á vítalínunni og unnu ævintýranlegan sigur á öflugu sænsku liði. Lokatölur 61:58.

Stigahæstur hjá Íslandi var Breki Gylfason með 13 stig og þeir Kristinn Pálsson og Þórir Þorbjarnarson settu níu stig hvor.

Á Facebook síðu og Instagram síðu KKÍ er hægt að sjá myndir og myndskeið frá leik Íslands og Svíþjóðar.

Á morgun heldur mótið áfram en klukkan 17.00 hefst leikur Finnlands og Svíþjóðar og klukkan 20.00 mæta Íslendingar Ísraelum.

Tölfræði leikjanna:
Finnland-Ísrael
Ísland-Svíþjóð