26 maí 2017Ívar Ásgrímsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, verður fyrsti þjálfarinn í 24 ár sem nær því að fara með kvennaliðið á þrenna Smáþjóðaleika. Torfi Magnússon fór með konurnar á tvenna Smáþjóðaleika í upphafi tíunda áratugsins, fyrst í Andorra 1991 og svo á Möltu 1993. Það eru liðin 12 ár síðan að Ívar fór fyrst með íslenska kvennalandsliðið á Smáþjóðaleika en það var á leikunum í Andorra árið 2005. Sex íslenskir þjálfarar hafa farið einu sinni með konurnar á Smáþjóðaleika.

Aðeins einn leikmaður var í liðinu hans Ívars á Smáþjóðaleikunum fyrir tólf árum sem er með núna en það var hún Helena Sverrisdóttir, sem verður þá búinn að taka þátt í öllum mótunum með Ívari. 

Þjálfarar íslenska kvennalandsliðsins á Smáþjóðaleikum: 
Ívar Ásgrímsson · 3 (2005, 2015, 2017) 
Torfi Magnússon · 2 (1991, 1993) 
Sverrir Þór Sverrisson · 1 (2013) 
Ágúst Líndal · 1 (1989) 
Svali Björgvinsson · 1 (1995) 
Sigurður Ingimundarson · 1 (1997) 
Hjörtur Harðarson · 1 (2003) 
Henning Henningsson · 1 (2009)