10 maí 2017

Framundan um helgina er seinni helgi úrslita yngri flokka 2017 en þá verður leikið til úrslita í 10. flokki drengja, 10. flokki stúlkna og Unglingaflokki karla.

Dagskrá helgarinnar er hér að neðan en leikið verður á Flúðum í umsjón Hrunamanna. Undanúrslit fara fram á föstudegi og laugardegi og á sunnudegi er síðan komið að úrslitaleikjunum.

Allir leikir helgarinnar verða í beinni tölfræðilýsingu á kki.is.
Allir leikir helgarinnar verða í beinni útsendingu á YouTube-síðu KKÍ.

Hér er Leikskrá helgarinnar með upplýsingum um liðin, þjálfara og dómara.

Dagskrá seinni úrslitahelgar yngri flokka á Flúðum:

Föstudagur 12. maí
Kl. 18:00 · Unglingaflokkur karla · Undanúrslit Haukar-Breiðablik
Kl. 20:00 · Unglingaflokkur karla · Undanúrslit KR-Grindavík 
Laugardagur 13. maí
Kl. 11:00 · 10. flokkur stúlkna · Undanúrslit Grindavík-Haukar 
Kl. 12:45 · 10. flokkur stúlkna · Undanúrslit Keflavík-Njarðvík 
Kl. 14:30 ·  10. flokkur drengja · Undanúrslit Stjarnan-Njarðvík
Kl. 16:15 ·  10. flokkur drengja · Undanúrslit Þór Akureyri-KR
Sunnudagur 14. maí
Kl. 12:00 · 10. flokkur stúlkna  Úrslitaleikur
Kl. 14:00 · 10. flokkur drengja Úrslitaleikur
Kl. 16:00 · Unglingaflokkur karla Úrslitaleikur

#korfubolti