28 apr. 2017

Vegna mikillar aðsóknar á oddaleik KR og Grindavíkur í úrslitum Domino´s deildar karla þurfa þeir handhafar KKÍ korta sem ætla sér að sækja leikinn að ná sér í miða í DHL-höllinni fyrirfram. 

Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteini/boðskorta KKÍ við hurð, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum á leikinn.

Miðaafhending fer fram á morgun laugardaginn 29. apríl frá kl. 12-14 í anddyri DHL-hallarinnar.
Miðar verða ekki afhentir fyrir utan auglýstan tíma.

#korfubolti