17 apr. 2017

Fresta þarf leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum Domino´s deildar kvenna í kvöld vegna veðurs. Leikurinn mun fara fram á morgun þriðjudaginn 18. apríl.

Þar sem leikur KR og Grindavíkur í úrslitum Domino´s deildar karla er einnig á morgun er búið að færa hann til svo að það verði ekki skörun.

KR-Grindavík verður kl. 18.15 og Snæfell-Keflavíkur verður kl. 20.00.

Þriðjudagur 18. apríl 2017:
DHL-höllin kl. 18.15 KR-Grindavík Domino´s deild karla
Stykkishólmur kl. 20.00 Snæfell-Keflavík Domino´s deild kvenna