10 apr. 2017Skallagrímur og Keflavík mætast í undanúrslitum Domino's deildar kvenna í kvöld og verður Stöð 2 Sport á staðnum og sýnir leikinn í beinni útsendingu. Leikurinn hefst kl. 19:15 og fer hann fram í Fjósinu í Borgarnesi.

Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir Keflavík en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer áfram í lokaúrslitin þar sem Snæfell hefur þegar tryggt sér sæti í lokaúrslitunum.

Domino's deild kvenna í kvöld:

🏆 Undanúrslit · Leikur 4
🏀 Skallagrímur (1) - Keflavík (2)
⏰ 19:15
➡️ Fjósið, Borgarnesi
📺 Sýndur beint á Stöð 2 Sport

#korfubolti #dominos365