28 mar. 2017Úrslitakeppni 1. deildar kvenna hófst á sunnudaginn með fyrsta leik Þórs Akureyri og Breiðablik í úrslitakeppni 1. deildar kvenna. Þar höfðu Breiðablik sigur og leiða því einvígið 1-0.

Í kvöld er komið að leik tvö í Smáranum og hefst hann kl. 19:00. Hr. Hnetusmjör hitar upp fyrir leik og Dansstúdíó World Class verður með atriði í hálfleik.

Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki tryggir sér sæti í Domino's deild kvenna að ári.

#korfubolti