27 mar. 2017Um helgina réðst hvaða lið mætast í úrslitum 1. deildar karla í ár en oddaleiki þurfti til að skera úr um það í báðum undanúrslita viðureignunum. Hamar vann Fjölni á laugardaginn og í gær sunnudag, hafði Valur betur gegn Breiðablik eftir framlengdan leik.

Það eru því Valur og Hamar sem mætast í úrslitunum um laust sæti í Domino's deildinni að ári og þarf þrjá sigurleiki til að vinna einvígið. 

Fyrsti leikur Vals og Hamars fer fram á fimmtudaginn kemur, 30. mars, kl. 19:30 í Valshöllinni.

#korfubolti