24 mar. 2017
Nýr íslandsmeistarabikar kvenna var kynntur til leiks í dag á blaðamannafundi fyrir úrslitakeppni Domino's deild kvenna.

Bikarinn er gerður að fyrirmynd íslandsmeistarabikars karla, sem afhentur hefur verið frá árinu 1987, en nýji bikarinn er handsmíðaður í New York í Bandaríkjunum, af sama fyrirtæki og framleiðir alla verðlaunagripi fyrir NBA-deildina, til dæmis fyrir Stjörnuleikshátíðina ár hvert.

KKÍ mun afhenda Íslandsmeisturum í efstu deild kvenna bikarinn um ókomin ár og mun án efa vekja álíka eftirtekt líkt og bikar karla sem er meðal fallegustu bikurum sem afhentir eru í íslenskum íþróttagreinum.

#korfubolti