21 mar. 2017Í kvöld fer fram lokaumferðina í Domino's deild kvenna á þessu tímabili þegar fjórir leikir fara fram. Stöð 2 Sport verður í Hólminum og sýnir leik Snæfells og Keflavíkur í beinni útsendingu.

Snæfell fær í kvöld deildarmeistaratitilinn sinn afhendann í leikslok, en þær hafa tryggt sér titilinn nú þegar, fyrir lokaleikinn í kvöld. Það verða þau Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, og Guðbjörg Norðfjörð, varaformaður KKÍ, sem afhenda verðlaunin í kvöld.

Leikir kvöldins · Domino's deild kvenna 
Kl. 18:00 🏀 Valur-Skallagrímur · Valshöllin
Kl. 19:15 🏀 Stjarnan-Grindavík · Ásgarður
Kl. 19:15 🏀 Snæfell-Keflavík · Stykkishólmur
Kl. 19:15 🏀 Njarðvík-Haukar · Ljónagryfjan

#korfubolti