5 mar. 2017Fjórir leikir fara fram í kvöld kl. 19:15 í Domino's deild karla.

Stöð 2 Sport ætlar að vera á tveim stöðum og skipta á milli leikja eftir spennustigi og gangi leikja. Aðalleikur kvöldins er leikur Skallagríms og Þórs Þorlákshafnar í Borgarnesi og skipt verður yfir í Stjarnan-Haukar inn á milli.

Lifandi tölfræði verður á kki.is frá öllum leikjum kvöldsins að venju.

Leikir kvöldsins:
🏀 Skallagrímur-Þór Þ. · Beint á Stöð 2 Sport
🏀 Stjarnan-Haukar · Beint á Stöð 2 Sport
🏀 Tindastóll-Grindavík · Sýndur beint á netinu á www.tindstoll.is
🏀 Snæfell-KR

#korfubolti #dominos365