12 feb. 2017

Í dag fara fram síðustu fimm úrslitaleikir Maltbikarsins, bikarkeppni KKÍ, sem leiknir verða í Laugardalshöllinni.

Allir leikir dagsins verða sýndir beint. Fyrstu tveir leikir dagsins verða á netinu á ruv.is. RÚV mun svo sýna í sjónvarpinu úrslitaleikir Unglingaflokka karla og kvenna og að lokum verður síðasti leikur dagsins sýndur ruv.is.

Sunnudagur 12. febrúar · Dagskráin:
Kl. 09:45 ·  9. flokkur drengja · Valur-Vestri           ruv.is
Kl. 11:45 · 10. flokkur drengja · Þór Ak.-Stjarnan          ruv.is
Kl. 13:45 · Unglingaflokkur kvenna · Keflavík-Haukar RÚV
Kl. 16:00 · Unglingaflokkur karla · Tindastóll-KR RÚV
Kl. 18:15 ·  9. flokkur stúlkna · Grindavík-Keflavík ruv.is

Aðgangur er ókeypis og eru körfuknattleiksaðdáendur hvattir til að koma og njóta veislunnar í dag og kvöld.

#maltbikarinn