9 feb. 2017

Í dag verður leikið í undanúrslitum Maltbikars karla í Laugardalshöllinni. Tveir leikir fara fram og munu sigurvegarar þeirra mætast í úrslitaleiknum á laugardaginn kemur kl. 16:30 í Höllinni.

Leikirnir:
Fyrri undanúrslitaleikur dagsins er viðureign Vals og KR sem hefst kl. 17:00.
Seinni undanúrslitaleikurinn er viðureign Þórs Þ. og Grindavíkur sem hefst kl. 20:00.

RÚV sýnir beint frá fyrri leiknum í sjónvarpinu á aðalrás sinni og seinni leiknum á RÚV2.
Lifandi tölfræði verður frá báðum leikjunum á kki.is

Miðasala:
Selt er inn á hvorn leik fyrir sig og fer miðasala fram hjá félögunum til 13:00 í dag. Hún er einnig í gangi á tix.is á netinu.Miðasala verður svo á leikstað í anddyri Hallarinnar að auki. 

Miðaverð er 1.500 kr. fyrir 17 ára og eldri og 500 kr. fyrir 16-6 ára börn.

Miðasala er einnig í gangi fyrir undanúrslit karla með sama hætti, til 13:00 á morgun, hjá viðkomandi félögum, og á netinu á tix.is.

#maltbikarinn