30 jan. 2017Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram fyrir undanúrslita- og úrslitaleiki meistaraflokka í Maltbikarnum sem framundan eru þann 8.-9. febrúar (undanúrslit mfl.) og 11. febrúar (úrslitaleikir mfl.)

Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta við hurð, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum á viðburðinn.
 
Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miðana fyrir úrslitaleikina í eigin persónu föstudaginn 3. febrúar á skrifstofu KKÍ á milli 09:00 og 16:00.

Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis:
Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst á skrifstofu KKÍ á sama tíma (á milli 09:00 og 16:00) til þess að láta taka frá fyrir sig miða sem síðan verður hægt að nálgast í Laugardalshöll á leikdegi þegar miðasala opnar gegn framvísun aðgönguskírteinis í andyri. Tölvupóstinn skal senda á kki@kki.is

Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars:
„Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“

Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni hérna

Maltbikarhelgin:
Leikið er í úrslitum yngri flokka í Maltbikarnum föstudaginn 10. febrúar og sunnudaginn13. febrúar og er aðgangur ókeypis á alla þá leiki. RÚV mun sýna beint frá öllum meistaraflokksleikjunum sem og báðum úrslitaleikjum unglingaflokkanna. RUV.is mun streyma öllum öðrum yngriflokka leikjum á netinu.