30 jan. 2017Samkvæmt reglugerð um félagaskipti lokar félagaskiptaglugginn í annað sinn og í síðasta sinn á þessu tímabilli á miðnætti þriðjudaginn 31. janúar.

Það þýðir að engir leikmenn, íslenskir né erlendir, á öllum aldri, geta fengið félagaskipti eftir þann tíma. Það sama gildir um venslasamninga þar sem þeir lúta reglum um félagaskipti. Undanþága er þó þau leyfi sem verða í vinnslu fyrir lokun gluggans fyrir erlenda leikmenn.

Skila má gögnum alveg fram til lokunar gluggans kl. 23:59 en athygli skal vakin á því að leikmenn sem skila inn gögnum eftir kl. 16:00 á þriðjudeginum, hljóta fyrst leikheimild á miðvikudeginum daginn eftir, 1. febrúar frá kl. 09:00.

Innlend félagsskipti

Skila þarf félagaskiptablöðum útfylltum með undirskrift leikmanns og forsvarsmanni þess félags sem gengið er úr á skrifstofu KKÍ eða senda í tölvupósti. Greiða þarf fyrir með millifærslu eða fá undirskrift nýja félagsins ef um skuldfærslu er að ræða. Í þeim tilfellum þar sem leikmaður er eldri en 20 ára þarf félaga sem gengið er í einnig að vera skuldlaust við KKÍ fyrir lok miðnættis 31. janúar.

Leikheimildir erlendra leikmanna
Skila þarf inn öllum gögnum sem KKÍ fer fram á auk þess að beiðni um LOC, sé þess er þörf, skal vera kominn í gang ásamt því að félag þarf að vera skuldlaust við KKÍ. Staðfesting frá UTL og LOC má þó berast eftir 31. janúar og hlýtur leikmaður þá leikheimild frá og með þeim degi þegar öll gögn hafa borist og KKÍ gefið út formlega leikheimild.