27 jan. 2017

Körfuknattleikssamband Íslands auglýsir eftir umsóknum á þjálfaranámskeið FIBA Europe, FIBA Europe Coaching Certificate (FECC).

Um er að ræða evrópskt þjálfaranám sem spannar þrjú sumur, árin 2017, 2018 og 2019.
 

Umsækjandi þarf að skuldbinda sig í þrjú ár sem þátttakandi í þessu námi.

KKÍ á eitt öruggt pláss á námskeiðinu en möguleiki á öðru er fyrir hendi en það kemur í ljós þegar allar þjóðir hafa sent umsóknir sínar inn.

 

Þátttakendur bera kostnað við flug og uppihald en námskeiðið sjálft er gjaldfrjálst. KKÍ veitir styrk að upphæð 50.000 kr. fyrir hvert ár.


Áhugasamir þurfa að fylla út umsóknareyðublað og í kjölfarið senda umsóknina inn til KKÍ á netfangið kki@kki.is fyrir 14. febrúar næstkomandi.

Upplýsingar um námskeiðið má finna hér að neðan:

 

Umsóknareyðublaðið.


Almennar upplýsingar.

 

Fimm íslenskir þjálfarar hafa klárað FECC þjálfarnámið.

 

Einar Árni Jóhannsson 2011

Lárus Jónsson 2013

Hjalti Þór Vilhjálmsson 2013

Ágúst S. Björgvinsson 2015

Ingi Þór Steinþórsson 2015

Hallgrímur Brynjólfsson er í náminu og klárar 2018.

 

Nánari upplýsingar veitir Stefán Þór Borgþórsson á skrifstofu KKÍ.