25 jan. 2017
Maltbikarhelgin er stærsti viðburður sem KKÍ heldur á hverju ári. Það eru því mörg störfin sem þarf að vinna og óskar KKÍ eftir sjálfboðaliðum sem hafa áhuga á að taka þátt í viðburðinum. Hver og einn getur ráðið hversu mikið hann vill bjóða fram sína aðstoð og hægt er að raða niður á störf eftir tíma eða leikjum yfir helgina.

KKÍ óskar eftir aðstoð í ýmisleg störf yfir helgina og meðal annars fólk í:
- sjoppu
- umsjón með samfélagsmiðlum KKÍ (facebook, Instagram, twitter)
- frágang milli leikja í stúku
- starfsmenn á moppur í hverjum leik
- gæslu
 
Ef þú hefur áhuga á að vera með okkur í liði þá endilega sendu okkur tölvupóst á kki@kki.is.