10 des. 2016Í dag, laugardaginn 10. desember, verður dregið í riðlakeppni yngri liðanna (fyrir utan U18 karla sem fer fram 16.-22. des.) og þá kemur í ljós hverjir verða andstæðingar okkar liða í sumar.

Hægt er að fylgjast með drættinum í beinni á YouTube-rás FIBA hérna og hefst athöfnin kl. 09:30 að íslenskum tíma.

Ísland mun eiga landslið í Evrópukeppnum U16, U18 og U20 liða drengja og stúlkna í sumar.