6 des. 2016

Nú rétt í þessu var dregið í 8-liða úrslit Maltbikarsins. Dregið var í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar og voru það eftirfarandi lið sem drógust saman:

Maltbikar kvenna · 8-liða úrslit:
Snæfell-Stjarnan
Grindavík-Keflavík
Breiðablik-Haukar
Skallagrímur-KR

Maltbikar karla · 8-liða úrslit:
Þór Akureyri-Grindavík
Höttur-KR
Valur-Haukar
Þór Þorlákshöfn-FSu

Leikið verður dagana 15.-16. janúar en þó verður einn kvennaleikur þann 14. janúar á RÚV og svo verður karlaleikur 15. janúar í beinni á RÚV.