20 ágú. 2016Framundan eru landsleikir landsliðs karla í undankeppni EM, EuroBasket 2017. Fyrsti heimaleikurinn fer fram í Laugardalshöllinni miðvikudaginn 31. ágúst þegar við tökum á móti Sviss kl. 19:15.

Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram fyrir leikinn því ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta við hurð, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum á viðburðinn.
 
Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miðana fyrir alla þrjá landsleikina í eigin persónu fimmtudaginn 25. ágúst á skrifstofu KKÍ á milli 09:00 og 16:00.

Hinir tveir heimaleikirnir verða 14. september gegn Kýpur kl. 20:15 og Belgíu 17. september kl. 16:00.

Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis:
Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst á skrifstofu KKÍ á sama tíma (á milli 09:00 og 16:00) til þess að láta taka frá fyrir sig miða sem síðan verður hægt að nálgast í Laugardalshöll á leikdegi þegar miðasala opnar gegn framvísun aðgönguskírteinis/skilríkja í andyri. Tölvupóstinn skal senda á kki@kki.is.

Boðsmiðar verða ekki afhendir fyrir utan auglýstan tíma.

Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars:
„Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“

Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni hérna

Almenn miðasala fer fram á tix.is á alla heimaleiki Íslands.