26 jún. 2016Í dag er komið að fyrsta leikdeginum á NM 2016 í Finnlandi. Þá leika öll okkar lið gegn sömu þjóð í dag og er fyrsti andstæðingur okkar liða Danmörk. Leikið er á þremur völlum á mótstaðnum í Finnlandi og verður sýnt beint frá völlum 1 og 2 í SISU Training Center í Kisakallio.

Leikjadagskráin í Kisakallio, Finnlandi í dag: (tímar á ísl.)
kl. 15:30 · U16 stúlkna  · Ísland gegn Danmörku
kl. 17:15 · U16 drengja · Ísland gegn Danmörku
kl. 17:15 · U18 kvenna  · Ísland gegn Danmörku
kl. 17:45 · U18 karla · Ísland gegn Danmörku

LIFANDI TÖLFRÆÐI:
Lifandi tölfræði allra leikjanna er að finna efst á kki.is sem og hérna! (http://live.baskethotel.com/fba/)


ÚTSENDINGAR Á NETINU:
Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu leikjum á SUSI 1 vellinum gegn vægu gjaldi (€8 mótið) á Fanseat.com.
Þar verða einnig upptökur af leikjunum aðgengilegar.

Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu leikjum á SUSI 2 vellinum beinni útsendingu á Youtube-rás Finnlands í opinni dagskrá.