4 maí 2016Um síðustu helgi æfðu U15 ára liðin á Álftanesi og í Þorlákshöfn og gengu æfingar vel. 18 leikmenn voru í hópunum tveim og nú hafa þjálfarar liðanna valið sín 12 manna lið sem taka þátt í Copenhagen-Invitational mótinu helgina 17.-19. júní.

U15 ára lið stúlkna
Þjálfari er Daníel Guðni Guðmundsson en hann tók við þjálfun liðsins af Finni Jónsyni. Finnur, sem var með Afreksbúðir stúlkna í fyrra og hefði haldið áfram með árganginn, þurfti að hætta í bili af persónulegum ástæðum. KKÍ þakkar Finni fyrir sinn þátt og býður Daníel Guðna velkominn til starfa, en aðstoðarþjálfari hans verður kynntur á næstunni.

Leikmenn U15 stúlkna:

Alexandra Eva Sverrisdóttir · Njarðvík
Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík
Ásta Júlía Grímsdóttir · KR
Eygló Kristín Óskarsdóttir · KR
Fanndís María Sverrisdóttir · Fjölnir
Hrefna Ottósdóttir · Þór Akureyri
Jenný Lovísa Benediktsdóttir · Njarðvík
Ólöf Rún Óladóttir · Grindavík
Sigrún Björk Ólafsdóttir · Haukar
Sigurbjörg Eiríksdóttir · Keflavík
Stefanía Ósk Ólafsdóttir · Haukar
Vigdís María Þórhallsdóttir · Grindavík