19 feb. 2016Sigrún Sjöfn Ámundadóttir mun leika sinn tuttugasta leik fyrir A-landslið Íslands í keppnum á vegnum FIBA þegar Ísland mætir Portúgal á laugardaginn í undankeppni EM 2017.

Sigrún er aðeins níunda íslenska konan sem nær þessu en hér eru bæði taldir með leiki í undankeppni EM sem og leikir í Evrópukeppni Smáþjóða. 

Anna María Sveinsdóttir og Hildur Sigurðardóttir eiga metið en þær léku báðar 29 FIBA-landsleiki á sínum landsliðsferlum.

Helena Sverrisdóttir er hæst meðal núverandi leikmanna íslenska liðsins en hún mun spila sinn 23. FIBA-landsleik á móti Portúgal.    

Sigrún hoppar upp fyrir tvær konur sem stoppuðu í 19 FIBA-landsleikjum en það eru Keflvíkingarnir Kristín Blöndal og Erla Þorsteinsdóttir.

Sigrún ætti síðan að komast upp fyrir tvær til viðbótar í leiknum á móti Ungverjalandi en Linda Stefánsdóttir og Kristrún Sigurjónsdóttir eru báðar með 20 FIBA-landsleiki fyrir íslenska kvennalandsliðið.

Sigrún Sjöfn leikur með Grindavík í Domino´s deild kvenna á þessu tímabili þar sem hún hefur verið með 12,8 stig, 9,6 fráköst og 4,0 stoðsendingar að meðaltali í leik.

Sigrún á einnig FIBA-keppnislandsleiki að baki sem leikmaður KR og Skallagríms. Hún var þó aldrei valin í A-landsliðið sem leikmaður Hauka því hún skipti yfir í Skallagrím sumarið 2007 og lék með liðinu á Landsmótinu áður en kom að hennar fyrstu A-landsleikjum um haustið. 

Flestir FIBA-leikir með íslenska kvennalandsliðinu:

Anna María Sveinsdóttir · 29
Hildur Sigurðardóttir · 29
Birna Valgarðsdóttir · 27
Signý Hermannsdóttir · 25
Guðbjörg Norðfjörð · 24
Helena Sverrisdóttir · 22
Linda Stefánsdóttir · 20
Kristrún Sigurjónsdóttir · 20
Kristín Blöndal · 19
Erla Þorsteinsdóttir · 19
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir · 19
Pálína Gunnlaugsdóttir · 17
Bryndís Guðmundsdóttir  · 16
Ragna Margrét Brynjarsdóttir · 16
Erla Reynisdóttir · 15
Anna Dís Sveinbjörnsdóttir · 15
Hanna B. Kjartansdóttir · 15
Alda Leif Jónsdóttir · 15
Helga Þorvaldsdóttir · 14
María Ben Erlingsdóttir · 14