7 nóv. 2001Körfuknattleiksdeild Fjölnis og Hópbílar standa fyrir körfuboltahátíð í Grafarvogi helgina 24. og 25. nóvember. Hátíðin er fyrir 10 ára og yngri stráka (fæddir 1991), og 11 ára og yngri stelpur (fæddar 1990). Á hátíðinni verður: Stórmót í körfu - aldurs- og getuskipt, hvert lið leikur 5-6 leiki, ( 2X12 mín). Leikið verður bæði á laugardegi og á sunnudegi. Bíóferð...Ótrúleg kvöldvaka - stjörnuleikur, rúllubolti og allir fara i vítakeppni, og fleira og fleira………… Kostnaður: Mótsgjald per félag kr. 10.000 óháð fjölda liða. Verð á hvern þátttakanda: kr. 3000. Innifalið: 1 stykki körfuboltamót auk fæðis (þrjár máltíðir og pizza á sunnudaginn), gisting á laugardagsnóttina og ótrúleg skemmtun. Allir þátttakendur fá verðlaunapening á lokahátið mótsins! Frítt fyrir þjálfara og einn fararstjóra. Skráningarfrestur er til 15. nóvember 2001. Skráning og nánari upplýsingar: Thomas, sími 860-8833.