1 nóv. 2001Heimsóknamet á kki.is var slegið í nýliðnum október mánuði þegar 21.303 heimsóknir voru á vefinn. Fyrra metið, sem var frá því í október í fyrra var 18.430 heimsóknir. Þá féll metið yfir heimsóknir í einni viku einnig nú í síðustu viku 5.274 heimsóknir þegar voru skráðar á vefinn. Fyrra met var frá því í október í fyrra. Þá var sl. mánudagur, 29. október metdagur á kki.is því alls voru heimsóknir þann dag 1.088 talsins. Mánudagar eru sem fyrr vinsælustu dagarnir á vefnum því þetta sama met féll einnig 15. október sl.Flestir heimsækja vefinn milli kl. 11-12 á morgnana.