29 ágú. 2001Ísland og Sviss mætast í landsleik í Njarðvík í kvöld kl. 20. Á æfingu í gær valdi Friðrik Ingi Rúnarsson þá leikmenn sem leika í kvöld, en þeir sem hvíla í kvöld eru Guðlaugur Eyjólfsson og Magnús Þór Gunnarsson. Svisslendingar komu til landsins á sunnudag og hafa dvalið á hóteli á Suðurnesjum og æft tvisvar á dag í íþróttahúsi Njarðvíkur. Þeir ættu þá að vera klárir í slaginn í kvöld. Eflaust verður um hörkuleik að ræða, en leikir þessara þjóða hafa jafnan verið mjög jafnir og spennandi. Svisslendingar eru efstir í D-riðlinum, en okkar strákar ætla sér stóra hluti í kvöld.