28 ágú. 2001Friðrik Ingi Rúnarsson hefur kallað þá Guðlaug Eyjólfsson UMFG og Magnús Þór Gunnarsson Keflavík inní landsliðshópinn fyrir leikina gegn Svisslendingum og Írum. Sigurður Þorvaldsson ÍR sem var í hópnum gegn Finnum á laugardaginn og er áfram í hópnum. Þessir leikmenn koma í stað þeirra Fannars Ólafssonar og Sævars Sigurmundssonar sem farnir eru til náms í Bandaríkjunum. Leikurinn gegn Sviss verður í Njarðvík á morgun kl. 20, en leikið verður gegn Írlandi á laugardaginn kl. 16:30 í Njarðvík. Við þessar breytingar lækkar meðalhæð íslenska liðsins um tæpa 3 sm. og er 194,7 sm. Meðalaldur liðsins er sem fyrr 22 ár. Ísland og Sviss hafa mæst fimm sinnum áður á körfuknattleiksvellinum. Einu sinni hefur Ísland haft betur, en Sviss fjórum sinnum. Sigurleikurinn var í fyrsta landsleik þjóðanna á EM í Svíðþjóð 1981, 90-83. Allir leikir þessara þjóða hafa verið jafnir og spennandi og síðast þegar þjóðirnar mættust sigruðu Svisslendingar 69-72. Það var á æfingamóti í Lúxemburg 1999.