25 ágú. 2001Íslenska landsliðið mætti Finnum í síðari leik liðanna í undankeppni Evrópumóts landsliða í dag í Finnlandi og lauk leiknum með sigri Finna sem gerðu 97 stig gegn 66 stigum Íslands. Finnska liðið yfirspilaði íslenska liðið í fyrri hálfleik og náði þrjátíu stiga forskoti. Íslenska liðið lék illa í fyrri hálfleik og komst aldrei í takt við leikinn. Staðan í hálfleik var 54-26 Finnum í vil og var Friðrik Ingi Rúnarsson landsliðsþjálfari allt annað en ánægður með leik sinna manna. Í síðari hálfleik var allt annað að sjá til liðsins og lék liðið skínandi körfubolta á stundum. Það dugði þó skammt og þrjátíu stiga tap gegn Finnum er staðreind. Jón Arnór Stefánsson var yfirburðamaður í íslenska liðinu í þessum leik. Gerði 19 stig, tók 5 fráköst, var með 4 stolna bolta og 3 stoðsendingar. Páll Kristinsson kom sterkur inn í liðið í síðari hálfleik og gerði öll sín 14 stig í hálfleiknum. Herbert Arnarson gerði 9 stig en aðrir minna. Íslenska liðið á eftir tvo heimaleiki í riðlinum. Leikið verður gegn Sviss í Njarðvík á miðvikudaginn kl. 20.00 og gegn Írum á laugardaginn kl. 16.30, einnig í Njarðvík.