25 maí 2001Rétt í þessu var að ljúka neyðarfundi stjórnar FIBA í kjölfar þess að ULEB-samningurinn var felldur á þingi FIBA í Bad Kreuznach í Þýskalandi. Lyktir urðu þær að Yvan Mainini, frá Frakklandi, forseti FIBA og sjö stjórnarmenn sögðu af sér. Þá íhugaði Borislav Stankovic framkvæmdastjóri FIBA einnig afsögn. Eftir í stjórninni eru sjö stjórnarmenn og þeir munu funda á morgun með Stankovic. Eftir þann fund mun Stankovic skýra frá því hvort hann segi af sér eða starfi áfram sem framkvæmdastjóri til fram í desember á næsta ári, þegar samningur hans rennur út. Borislav Stankovic hefur verið framkvæmdastjóri FIBA frá árinu 1976 og það yrði sögulegur og sorglegur endir á ferli hans ef hann segði af sér undir þessum kringumstæðum. Þingstörf munu halda áfram á sunnudag og þar verða önnur mál sem fyrir þinginu liggja afgreidd. Síðan verður haldið aukaþing eftir 3 vikur þar sem ný stjórn FIBA verður kjörin. Þessa stundina sitja þeir Pétur Hrafn Sigurðsson og Ólafur Rafnsson fund í smáþjóðanefnd FIBA og mun sá fundur standa eitthvað fram á kvöld.