13 maí 2001Dregið var í töfluröð fyrir Íslandsmótið 2001-2001 á ársþingi KKÍ fyrr í dag. Íslandsmeistarar Njarðvíkur munu hefja titilvörnina í á útivelli í Borgarnesi þar sem þeir mæta Skallagrímsmönnum. Nýliðar Stjörnunnar munu leika sinn fyrsta leik í efstu deild gegn Þór á Akureyri. Þá munu hinir nýliðarnir og nágrannar Stjörnunnar, Breiðabliksmenn úr Kópavogi taka á móti Tindastólsmönnum í 1. umferð Epson-deildarinnar. Í 1. umferð Epson-deildar í haust munu eftirtalin félög mætast: Þór Ak. - Stjarnan, Haukar - UMFG, KR - ÍR, Skallagrímur - UMFN, Breiðablik - Tindastóll, Hamar - Keflavík. Í 1. umferð 1. deildar kvenna munu eftirtalin félög mætast: Keflavík - KR, KFÍ - UMFN, UMFG - ÍS. Í 1. umferð 1. deildar karla munu eftirtalin félög mætast: ÍA - Snæfell, Reynir S. - Ármann/Þróttur, KFÍ - Þór Þ., ÍS - ÍG, Selfoss - Valur.