13 maí 200141. ársþingi KKÍ á Ásvöllum í Hafnarfirði lauk fyrir nokkrum mínútum. Helsta álitamál þingsins, tillögur um breytingar á fjölda erlendra leikmanna hér á landi, var afgreitt á þann hátt að engar breytingar voru gerðar á núverandi reglum. Þá var tillaga um að fækka liðum í efstu deild karla einnig felld. Af öðrum málum þingsins má nefna að ákveðið var að keppni í unglingaflokki karla og 1. flokki karla verði færð inn í 2. deildar keppnina. Tillaga um nýtt dómstólakerfi fyrir KKÍ var samþykkt og einnig var samþykkt reglugerð um venslasamninga. Reglum aganefndar var breytt lítillega og í yngri flokkunum var samþykkt að leikið skuli í öllum riðlum í 4. umferð Íslandsmótsins. Einng var samþykkt að leyfa 8. flokks stúlkum að leika með meistaraflokkum félaga sinna. Þá var úrslitaleikjum 1. deildar karla fækkað í einn. Þá var samþykkt að félag sem óskar eftir því að fá keppnisleyfi fyrir leikmann sem kemur frá örðum löndum en Evrópulöndum, skuli vera skuldlaust við KKÍ miðað við mánuðinn þar á undan, en áður var miðað við skuldastöðuna 1. júní. Reglum um sektarákvæði var einnig breytt lítillega.