10 maí 2001Ársþing KKÍ verður haldið á Ásvöllum í Hafnarfirði um næstu helgi eins og menn vita. Talsvert hefur borist af tillögum um breytingar á reglugerðum sambandsins, til dæmis hvað varðar erlenda leikmenn. Komnar eru fram tillögur um að leyfa tvo erlenda leikmenn (leikmenn utan Evrópu) með hverju liði og einnig tillaga um að banna alla erlenda leikmenn, þar með talda þá evrópsku. Alls eru [v+]skjol/Thingskjol2001.pdf[v-]þingskjölin[slod-] fyrir þingið orðin 17 talsins. [v+]skjol/Arsskyrsla 2001.pdf[v-]Ársskýrsla KKÍ 2001[slod-] er komin út og er hún 48 síður.