9 apr. 2001Körfuknattleiksdeild Hauka og Hafnarfjarðarbær halda hraðmót í körfuknattleik kvenna. Leikið verður fimmtudaginn 19.apríl 2001, sumardaginn fyrsta, á Ásvöllum í Hafnarfirði við bestu hugsanlegu aðstæður. Allt að 8 lið geta tekið þátt. Leikið verður í 2 riðlum og milli riðla um 2 efstu sætin. Leiktíminn er 2x 15 mínútur. Leiktími stöðvaður 2 seinustu mínútur í síðari hálfleik. Eitt vítaskot gefur eftir atvikum, 1,2 eða 3 stig. Eitt leikhlé í síðari hálfleik. Annars venjulegar reglur. Þáttöku-/staðfestingargjald skal greiða við skráningu. Gjaldið er krónur 4.000 á lið. Lið skal skaffa einn dómara, eða greiða kr. 500 fyrir hvern leik í dómaragjald. Verðlaun: 1. sæti bikar og máltíð á KFC fyrir 12. 2. sæti máltíð á KFC fyrir 12. Þjálfarar velja fimm manna lið mótsins. Hver leikmaður fær þess hlýtur að launum viðurkenningu og gjafabref að upphæð krónur 5.000- fyrir íþróttavörum. Þáttökutilkynningar skulu berast undirrituðum fyrir 14.4.2001 Körfuknattleiksdeild Hauka, SverrirHjörleifsson, sverrir@skyrr.is, Hs. 565 3570 / Vs . 569 5964 Gsm/NMT. 898 1678 / 852 3570