8 apr. 2001Njarðvíkingar sigruðu Tindastólsmenn í fyrsta úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistartitilinn í körfuknattleik, 89 - 65. Tindastólsmönnum gekk illa að stöðva Brenton Birmingham í liði UMFN, en hann skoraði 24 í leiknum, þar af 22 stig í fyrri hálfleik. Tindastólsmenn náðu að minnka muninn í 6 stig í þriðja fjórðungi, en Njarðvíkingar voru samt 11 stigum yfir eftir fjórðunginn, 64 - 53. Lokafjórðungurinn var eign Njarðvíkinga sem unnu öruggan sigur. stigahæstur í liði Tindastóls var Shawn Myers með 23 stig. Næsti leikur liðanna verður á Sauðárkróki á þriðjudagskvöld.