6 apr. 2001Nýliðinn marsmáðurinn var næst besti mánuðurinn á KKÍ-vefnum frá upphafi miðað við fjölda heimsókna á vefinn. Alls voru heimsóknirnar í mars 18. 306. Aðeins október á síðasta ári slær mars við, en þá voru heimsóknirnar 18.430 talsins. Þá voru vikur 9-12, frá lokum febrúar til loka mars, mjög góðar. Þessar vikur skiluðu allar yfir 4 þúsund heimsóknum og var 9. vika hæst með 4.280 heimsóknir. Mánudagar eru ennþá vinsælustu dagarnir á netinu og flestir leggja leið sína á kki.is milli kl. 11 og 12 á daginn.