3 apr. 2001Breiðablik tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild karla þegar liðið bar sigurorð af Stjörnunni í öðrum leik liðanna sem fram fór í Smáranum í kvöld. Blikar höfðu yfirhöndina í leiknum framanaf en í þriðja leikhluta tókst Stjörnumönnum að jafna og komast yfir. Þá settu Blikarnir aftur í gírinn og unnu sannfærandi sigur, 87-71, frammi fyrir fjölmörgum stuðningsmönnum sem fjölmenntu í Smárann. Bæði lið höfðu tryggt sér rétt til að leika í Epsondeildinni á næsta keppnistímabili.