15 mar. 2001Úrslitakeppni Epson-deildarinnar hefst í kvöld með þremur leikjum. Deildarmeistarar Njarðvíkur taka á móti Skallagrím, Tindastólsmenn fá Grindvíkinga í heimsókn og Íslandsmeistarar KR fá Hauka í heimsókn í vesturbæinn. Sá leikur verður sýndur beint á Sýn í kvöld. Annað kvöld verða Keflavíkingar í eldlínunni er þeir hefja atlögu sína að titlinum með leik á móti Hamri. Ljóst er að sjaldað eða aldrei hefur verið jafn mikil spenna í körfuboltanum og jafn mörg lið gert tilkall til titilsins. Deildin í vetur var mjög jöfn og spennandi allt fram á lokaleikina fyrir viku síðan. Óvænt úrslit hafa einkennt deildina í vetur og spurning hvort áframhald verður á því í úrslitakeppninni. Veikindi hafa sett strik í reikninginn hjá liðunum að undanförnu og spurning hvar flensan stigur sér niður næst. Á blaðamannafundi KKÍ í gær, þar sem úrslitakeppnin var kynnt kom meðal annars fram að nokkrir leikmanna Grindavíkur liggja í rúminu. Einnig verður gaman að sjá nýja leikmenn spreyta sig, en það eru skóladrengir frá Bandaríkjunum sem eru á heimleið í frí og ætla að leika með liðum sínum nokkra leiki í úrslitakeppninni. Þetta eru þeir Fannar Ólafsson Keflavík og Baldur Ólafsson KR. Þá hemur KR einnig fengið leikheimild fyrir þá Steinar Kaldal og Jakob Sigurðarson. Fylgst verður með gangi mála í leikjum kvöldsins hér á kki.is í kvöld.