14 mar. 2001Í gær tóku dómarar þrekpróf á vegum dómaranefndar KKÍ. Verða niðurstöður prófsins notaðar þegar kemur að niðurröðun á leiki í úrslitakeppninni. Alls tóku 17 dómarar prófið og stóðust 14 það með prýði. Dómarar gátu valið hvort þeir hlypu kl. 12.00 eða kl. 18.00 eftir því hvor tíminn hentaði þeim betur. Þrír hlupu kl. 12.00 en 14 völdu að hlaupa kl. 18.00.