9 mar. 2001Keppni í úrslitakeppni Epson-deildarinnar hefst fimmtudaginn 15. mars með þremur leikjum og síðan er einn leikur föstudaginn 16. mars. Síðari leirnir verða síðan sunnudaginn 18. mars og komi til oddaleikja verða þeir þriðjudaginn 20. mars. Þá hefur leikjum í undanúrslitum 1. deild karla verið raðað niður, en sú keppni hefst sunnudaginn 18. mars. Hægt er að sjá niðurröðun leikja í úrslitakeppnum með því að smella á tengla merkta úrslitakeppni hér til hægri á síðunni.