8 mar. 2001Stjarnan sigraði ÍS 65-80 í íþróttahúsi Kennaraháskólans í 1. deild karla í kvöld. Þar með tryggði Stjarnan sér deildarmeistaratitilinn, lauk deildarkeppninni með 32 stig. Ljóst er að Breiðablik verður í örðu sæti deildarinnar, Selfoss í því þriðja og Þór Þorl. í fjórða sæti. Þór Þ. mættu Ármanni/Þrótti í Laugardalshöll í kvöld og tapaði, 99-80. Í úrslitakeppni 1. deildar karla mætast Stjarnan - Þór Þ. og Breiðablik - Selfoss. Úrslitakeppnin hefst 18. mars.