6 mar. 2001KR getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn í 1. deild kvenna með sigri á Keflvík í kvöld. KR varð deildarmeistari í fyrra eftir að hafa aðeins tapað tveimur leikjum, en Keflavík varð í örðu sæti með tvö töp, en lakari innbyrðis árangur gegn KR. Í dag er KR með 4 töp, en Keflavík 3 töp. KR dugar sigur í kvöld til að tryggja sér titilinn þar sem innbyrðis árangur yrði þá betri gegn Keflavík. Fari svo mun það ráðast á Ísafirði um næstu helgi hvort Keflavík eða KFÍ verða í 2. eða 3. sæti deildarinnar. Ef Keflavík sigrar í leiknum í kvöld, dugar liðinu sigur í öðrum leiknum á Ísafirði um næstu helgi til að tryggja sér titilinn. KR yrði þá í öðru sæti og KFÍ í 3. sæti. Ef Keflavík vinnur KR í kvöld, en tapar svo báðum leikjunum á Ísafirði um næstu helgi verður KFÍ deildarmeistari. KR yrði þá í 2. sæti og Keflavík í 3. mt: KR-stelpurnar fögnuðu vel þegar þær urðu bikarmeistarar á dögunum. Hvað gerist í kvöld?