1 mar. 2001Fimm hörkuleikir eru á dagskrá í 20. umferð Epson-deildinnar í kvöld. Nýkrýndir bikarmeistarar ÍR taka á móti Skallagrím í Seljaskóla, en þessi leikur mun ráða miklu um það hvort liðið nær 8. sætinu í deildinni og þar með sæti í úrslitakeppninni. Leikurinn verður sýndur bein á sjónarpsstöðinni Sýn. Aðrir leikir í kvöld eru Valur - Hamar í Grafarvogi, en Valsmenn verða að sigra í þessum leik til að eiga möguleik á því að verjast falli í 1. deild. UMFG tekur á móti Haukum í Grindavík, en bæði þessi lið hafa verið nokkuð brokkgeng upp á síðkastið. Haukar eiga enn möguleika á fjórða sætinu og Grindvíkingar mæta með nýjan erlendan leikmann, William Keys, til leiks. Keflavík og Þór mætast í Keflavík og heimamenn mega ekki misstíga sig í toppbaráttunni, en liðið að enn möguleika á deildarmeistaratitli. Þórsrar eru enn í örlítilli fallhættu, en geta með sigri í kvöld tryggt sæti sitt í deildinni fyrir næsta keppnistímabil. Á Sauðárkróki taka Tindastólsmenn á móti KFÍ, sem þegar eru fallnir. Tindastóll á eins og möguleika á deildarmeistaratitli og þarf því nauðsynlega að sigra í leiknum í kvöld. Síðasti leikur 20. umferðar Epson-deildarinnar verður annað kvöld þegar topplið UMFN tekur á móti Íslandsmeisturum KR í Njarðvík. Allir leikir kvöldsins, sem og leikurinn annað kvöld hefjast kl. 20:00. mt: Sigurður Þorvaldsson og félagar í ÍR eiga mikilvægan leik fyrir höndum í kvöld gegn Skallagrím.