28 feb. 2001Aganefnd KKÍ hefur dæmt Bjarna Magnússon leikmann meistaraflokks ÍS í eins leiks bann. Bjarni verður því fjarri þegar ÍS tekur á móti ÍV á sunnudaginn kemur. Bjarna var vísað af leikvelli í leik Þór Þorl. og ÍS sl. föstudag og var hann í kjölfarið kærður til aganefndar fyrir óprúðmannlega framkomu.