24 feb. 2001Í dag 24. febrúar fagnar framkvæmdastjóri KKÍ, Pétur Hrafn Sigurðsson fertugsafmæli sínu. Pétur Hrafn hefur verið framkvæmdastjóri sambandsins frá 1987, sem er óvenjulangur tími á þessum vettvangi. Enginn dregur í efa að hann hefur verið afar farsæll framkvæmdastjóri og náð miklum árangri í þágu íslensks körfuknattleiks. Stjórn KKÍ sendir Pétri, eiginkonu hans Sigrúnu, og börnum þeirra Sigurði, Arnari og Jónu Þórey, hamingjuóskir í tilefni dagsins.