23 feb. 2001KFÍ og UMFG mættust í lokaleik 19. umferðar Epson-deildinnar á Ísafirði í kvöld. Botnlið KFÍ hafi betur í leiknum 101-99, en þrátt fyrir sigurinn er liðið fallið í 1. deild. Valsmenn geta enn bjargað sér frá falli ef þeir sigra í þeim þremur leikjum sem þeir eiga eftir og Þór Ak. tapar sínum leikjum. Liðið mætast í lokaumferð deildarinnar 8. mars og verður Valur að sigra með 8 stiga mun í leiknum til eiga möguleika verði úrslit fram að því þeim hagstæð. Í 1. deild karla vann Stjarnan sigur á ÍA 109-88 og Þór Þorlákshöfn tryggði sig inn í úrslitakeppni 1. deild með 90-67 sigri á ÍS.