8 feb. 2001Tindastólsmenn eru komnir í 2. sæti Epson-deildarinnar eftir sigur á Keflvíkingum í stórskemmtilegum leik á Sauðárkróki í kvöld. Lokatölur voru 82-76, en Tindastóll hafði yfir allan leikinn, sem sýndur var á sjónvarpsstöðinni Sýn. Njarðvíkingar eru í toppsæti deildarinnar. Þeir unnu stórsigur á Þórsurum í Njarðvík, 122-80. Þórsarar eru nú í 10. sæti Epson-deildarinnar. Íslandsmeistarar KR skutust upp í 4. sæti deildarinnar með 87-60 sigri á Skallagrím, sem sitja í 8. sæti, í Frostaskjóli. Hamar er í fimmta sæti deildarinnar eftir sigur á Grindvíkingum í Grindavík, 86-105. Í sjötta sætinu sitja Haukar, en þeir unnu botnlið KFÍ á Ásvöllum 103-86. Í Grafarvogi unnu ÍR-ingar sigur í nýliðaslag deildarinnar, 92-95. Valsmenn eru í 11. sæti deildarinnar, en ÍR-ingar í því 9. Í 1. deild kvenna léku ÍS og Keflavík í íþróttahúsi Kennaraháskóla Íslands. Lokatölur 43-72 sigur Keflavíkinga.