2 feb. 2001Njarðvíkingar sigruðu Hamar í Epson-deildinni í Hvergarði í gærkvöld, en það var fyrsti tapleikur Hamars á heimavelli í vetur. Keflavíkinga unnu Grindvíkinga í jöfnum leik í Keflavík og Skallagrímur lagði Haukar með eins stigs mun í Borgarnesi. Á Ísafirði unnu Valsmenn sinn annan sigur í röð í deildinni. ÍR tapaði fyrir Tindastól í Seljaskóla og Þórsarar töpuðu fyrir KR í tvíframlengdum leik á Akureyri. Tölfræði leikjanna er á Epson-deildarsíðunni, en því miður er ekki enn komin inn tölfræði úr leik Þórs og KR, en það stendur til bóta.