27 jan. 2001Íslenska landsliðið sigraði Portúgal á útivelli í dag, 81-84. Að sögn Gísla J. Friðjónssonar fararstjóra liðsins var leikurinn fjörugur og skemmtilegur. Mikil barátta var í íslenska liðinu, og hafði það forystu í lok allra leikhluta. Ljóst að uppbygging liðsins er á réttri leið, og framfarir verða með hverjum leik.